Enski boltinn

Sjáðu vítaspyrnur Pogba og Gylfa og upprúllun Chelsea

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark Everton sem tapaði 2-1 fyrir Manchester United á Old Trafford í gær. Mark Gylfa kom úr vítaspyrnu eftir að United hafði komist í 2-0.

Paul Pogba kom United yfir þegar hann tók frákastið eftir eigin vítaspyrnu og skoraði í annari tilraun eftir að Jordan Pickford varði vítið. Anthony Martial skoraði annað mark United.

Í Burnley völtuðu leikmenn Chelsea yfir Jóhann Berg Guðmundsson og félaga með 0-4 sigri. Crystal Palace bjargaði stigi gegn Arsenal með marki úr vítaspyrnu undir lok leiks liðanna á Selhurst Park.

Mörkin, vítaspyrnurnar og öll helstu atvik leikjanna þriggja má sjá hér að neðan.

Manchester United - Everton 2-1
Burnley - Chelsea 0-4
Crystal Palace - Arsenal 2-2



Fleiri fréttir

Sjá meira


×