Körfubolti

Love líklega frá í mánuð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Love í leik með Cleveland.
Love í leik með Cleveland. vísir/getty
Það eru erfiðir tímar hjá Cleveland Cavaliers. Liðið hefur ekki unnið leik í NBA-deildinni og nú er Kevin Love meiddur.

Cavs hefur tapað öllum sex leikjum sínum í vetur og brást við með því að reka Ty Lue um helgina. Bráðabirgðaþjálfari liðsins er aðstoðarmaður Lue, Larry Drew.

Lykilmaður liðsins, Kevin Love, er svo meiddur ofan á allt saman og verður líklega frá í mánuð.

Love hefur verið með 19 stig og 13,5 fráköst í leikjum liðsins og því mikið áfall fyrir liðið að missa hann. Cavs mun líklega fara varlega með leikmanninn og ekki hleypa honum of snemma á völlinn.

Love skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við Cavaliers síðasta sumar sem færir honum litlar 120 milljónir dollara í vasann.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×