Fótbolti

Skorar úr hverju einasta skoti á markið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alcacer fagnar í leik með Dortmund þar sem hann er orðinn kóngurinn.
Alcacer fagnar í leik með Dortmund þar sem hann er orðinn kóngurinn. vísir/getty
Langheitasti framherji heims um þessar mundir er Spánverjinn Paco Alcacer sem hefur skorað úr hverju einasta skoti á markið á þessari leiktíð.

Hinn 25 ára gamli Alcacer var lánaður frá Barcelona til Dortmund fyrir tímabilið og það virðist heldur betur hafa gert honum gott.





Hann er búinn að skora sex mörk í þremur leikjum fyrir Dortmund og það sem meira er þá hefur hann skorað fjögur landsliðsmörk í vetur.

Í heildina tíu mörk en það sem gerir þetta enn magnaðra er sú staðreynd að hann hefur aðeins skotið tíu sinnum á markið. Hann hefur skorað úr öllum sínum skotum sem hittu markið í sex leikjum. Sturluð staðreynd.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×