Handbolti

Auðvelt hjá Barcelona á HM félagsliða

Victor Tomas skorar í leik liðanna í dag.
Victor Tomas skorar í leik liðanna í dag.
Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona hófu í morgun leik á HM félagsliða sem fram fer í Doha.

Börsungar lentu ekki í neinum vandræðum gegn Al-Najma frá Katar sem þeir unnu örugglega, 37-28. Staðan í hálfleik var 19-14.

Aron spilaði ekki með liði Barcelona í dag. Markaskorið dreifðist vel hjá Börsungum en Casper Mortensen var markahæstur með fimm mörk.

Füchse Berlin á leik síðar í dag en þýska liðið mætir Taubate frá Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×