Íslenski boltinn

Eysteinn stýrir Keflavík með Janko

Anton Ingi Leifsson skrifar
Eysteinn þjálfar Keflavíkurliðið og Ómar sér um markverðina.
Eysteinn þjálfar Keflavíkurliðið og Ómar sér um markverðina. vísir/Fésbókarsíðar Keflavíkur
Eysteinn Húni Hauksson verður áfram þjálfari Keflavíkur sem féll úr Pepsi-deild karla en Eysteinn tók við liðinu um mitt sumar.

Keflvíkingar tilkynntu þetta í dag en Eysteinn Húni var aðstoðarþjálfari Guðlaugs Baldurssonar á síðasta ári og framan af þessu sumri.

Eftir að Guðlaugur sagði upp störfum var Eysteini treyst fyrir verkefninu en Keflavík kolféll úr Pepsi-deildinni. Liðið vann ekki leik í deildinni.

Eysteinn fær góðan aðstoðarmann því Milan Stefán Jankovic verður aðstoðarmaður Eysteins en hann hefur verið aðstoðarmaður í Grindavík síðustu ár við góðan orðstír.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×