Enski boltinn

Óvíst hvort Mané og Salah verði með á morgun

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mohamed Salah.
Mohamed Salah. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði á blaðamannafundi sínum í dag fyrir leikinn á móti Huddersfield á morgun að hann verði að bíða og sjá hvort Mo Salah og Sadio Mané geti verið með.

Óvíst hefur verið alla vikuna hvort tvíeykið geti spilað vegna smávægilegra meiðsla en þeir eru samt sem áður búnir að vera að æfa með aðalliðinu í vikunni.

„Við æfðum í gær og þá voru nokkrir strákanna með. Við verðum að sjá hvernig þeir koma út,“ sagði Klopp en flestir hans leikmenn voru að spila með landsliðum sínum á undanförnum dögum.

„Eina sem við erum nokkuð vissir um er að Keita verður ekki með. Við þurfum að sjá hvernig fer með alla hina. Þannig er staðan,“ sagði Klopp.

Liverpool mætir Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni á morgun klukkan 16.30 en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×