Íslenski boltinn

34 dagar liðnir og leikur Hugins og Völsungs er enn í fréttum: Hér er öll tímalínan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leik Völsungs og Tindastóls í sumar.
Úr leik Völsungs og Tindastóls í sumar. Hafþór Hreiðarsson/640.is
Ekkert varð af leik Hugins og Völsungs í 2. deild karla í fótbolta sem fara átti fram á Fellavelli í gær. Liðin mættu á sitthvorn völlinn og leikurinn fór ekki fram.

Mótanefnd Knattspyrnusambands Íslands hittist í dag og fór yfir málið. Niðurstaðan er að Huginn mætti ekki til leiks og Völsungur telst hafa unnið leikinn 3-0.

Hér fyrir neðan má sjá tímalínu þessa ótrúlega máls en nú eru 34 dagar síðan dómari leiks Hugins og Völsungs gerði afdrifarík mistök.

Völsungurinn Freyþór Hrafn Harðarson fékk eitt gult spjald í umræddum leik en dómari leiksins sendi hann í sturtu með tvö gul spjöld og þar með rautt spjald.

Allir eru sammála um að dómarinn hafi gert mistök en vandamálið er þegar hann fór að breyta leiksskýslunni eftir leik. Völsungur sendi frá sér yfirlýsingu um að dómari leiksins hafi falsað skýrsluna og eftir það fór málið á flug.  

Áfrýjunardómstóll KSÍ úrskurðaði síðan að leikur Hugins og Völsungs Húsavík í 2. deild væri ógildur og að það skuli endurtaka hann á Seyðisfjarðarvelli.

Leikurinn var settur á í gær 19. september en fór á endanum ekki fram. Völsungur og dómaratríóið mættu í Fellabæ en Huginn beið eftir þeim á Seyðisfirði.



Tímalína málsins varðandi endurtekinn leik Hugins og Völsungs

17. ágúst

Huginn vinnur Völsung 2-1 í 16. umferð 2. deildar karla. Freyþór Hrafn Harðarson, leikmaður Völsungs, fær ranglega rautt spjald frá dómara leiksins sem hélt að hann hefði gefið honum gult spjald fyrr í leiknum. Huginn skorar sigurmarkið eftir að Freyþór er rekinn af velli.

20. ágúst

Eftir meðferð leikskýrslu af skrifstofu KSÍ þar sem dómarinn fyllti skýrsluna út í samræmi við leiðbeiningar frá skrifstofu KSÍ upplýsti skrifstofa KSÍ Völsung um það verklag með tölvupósti. Leikmaðurinn sem fékk að líta rauða spjaldið í leik Hugins og Völsungs fór ekki í leikbann og gat því tekið þátt í næsta leik.

7. september

Völsungur áfrýar niðustöðu aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Völsungur sendir líka frá sér yfirlýsingu um að dómari leiksins hafi falsað skýrsluna.

9. september

Framkvæmdastjóri KSÍ vísar ummælum fulltrúa Völsungs í yfirlýsingu tengdri umræddu máli til aga- og úrskurðarnefndar.  

13. september

Völsungur sendir frá sér aðra yfirlýsingu um félagið hafi fengið hótanir frá KSÍ.

16. september

Áfrýjunardómstóll KSÍ úrskurðar að leikur Hugins og Völsungs Húsavík í 2. deild sé ógildur og að það skuli endurtaka hann á Seyðisfjarðarvelli.

16. september

Huginn sendir frá sér yfirlýsingu þar sem félagið hafnar niðurstöðu áfrýjunardómstólsins.

17.september

Endurtekinn leikur Hugins og Völsungs er settur á miðvikudaginn 19. september.

19. september

KSÍ færir leikinn af Seyðisfjarðarvelli yfir á Fellavöll í Fellabæ.

19. september

Völsungur og dómarar leiksins mæta í leikinn á Egilsstöðum en lið Hugins mætir á Seyðisfjarðarvöll. Enginn leikur fer fram. Huginn flaggar fána KSÍ í hálfa stöng.

20. september

Mótanefnd KSÍ úrskurðar að Huginn hafi ekki mætt til leiks og Völsungur telst hafa unnið leikinn 3-0.


Tengdar fréttir

Munum standa áfram með okkar málstað

Ekkert varð af leik Hugins og Völsungs í gær þar sem liðin mættu sitt á hvorn völlinn. Seyðfirðingar telja að KSÍ hafi verið óheimilt að skipta um völl og standa með sínum málstað þrátt fyrir að þeir gætu misst stig og átt von

Huginn og Völsungur mætast á miðvikudag

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, staðfesti á heimasíðu sinni í dag endurtekinn leikur Hugsins og Völsungs í 2. deild karla fari fram á miðvikudag.

Dómstóllinn að skapa slæmt fordæmi

Mikil umræða hefur skapast í knattspyrnuheiminum í kringum leik Hugins og Völsungs sem fram fer í 2. deildinni í knattspyrnu karla á Seyðisfjarðarvelli í dag. Mistök dómarans í leik liðanna um miðjan ágúst urðu til þess að liðin þurfa að mætast aftur.

Völsungi dæmdur 3-0 sigur á móti Huginn

Knattspyrnusamband Íslands hefur úrskurðað um leik Hugins og Völsungs í 2. deild karla sem átti að vera endurtekinn í gær en fór aldrei fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×