Viðskipti innlent

Hörður nýr framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra leikfélaga

Atli Ísleifsson skrifar
Guðfinna Gunnarsdóttir, formaður BÍL, og Hörður Sigurðarson.
Guðfinna Gunnarsdóttir, formaður BÍL, og Hörður Sigurðarson. Mynd/BÍL
Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ráðið Hörð Sigurðarson sem nýjan framkvæmdastjóra frá 1. janúar 2019. Hann tekur við starfinu af Vilborgu Á. Valgarðsdóttur sem hefur gegnt stöðunni frá árinu 1993.

Í tilkynningu kemur fram að Hörður sé bandalaginu að góðu kunnur. „Hann sat í varastjórn BÍL á árunum 1996-1998 og í aðalstjórn 1998-2006 og 2008-2010. Hann starfaði einnig í nefnd til undirbúnings Leiklistarvefsins 2002 og hefur verið Lénsherra (umsjónarmaður) hans frá upphafi til dagsins í dag, ásamt því að skrifa fyrir hann greinar og gagnrýni. Hörður var í undirbúningsnefnd NEATA hátíðarinnar á Akureyri 2010, hann var einnig starfsmaður hennar og stýrði þar m.a. gagnrýnifundum. 

Hörður hefur verið virkur félagi í Leikfélagi Kópavogs frá 1985 og hefur starfað nær óslitið með félaginu síðan í nær öllum hugsanlegum hlutverkum. Hann hefur einnig leikstýrt víða um land og sótt fjölmargar leiklistarhátíðir hérlendis sem erlendis.

Hörður hefur starfað  hjá Hugviti hf./GoPro Ltd síðan 2001, lengst af sem stjórnandi hugbúnaðarprófana og -skjölunar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×