Handbolti

Sigur hjá Arnari Birki og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Arnar Birkir í leik með Fram á síðasta tímabili
Arnar Birkir í leik með Fram á síðasta tímabili vísir/ernir
Arnar Birkir Hálfdánarson var á meðal markaskorara í sigri SönderjyskE á TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Arnar Birkir skoraði eitt mark úr fjórum skotum í leiknum. Christian Jensen, Aaron Mensing og Mikkel Kjær Möller skoruðu sex mörk hver og voru markahæstir.

SönderjyskE vann leikinn með fjórum mörkum, 29-25. Munurinn var einnig fjögur mörk í hálfleik, 16-12, eftir að hafa leitt megnið af fyrri hálfleik.

SönderjyskE er með sex stig eftir fimm leiki í úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×