Golf

Ótrúlegasta endurkoma íþróttasögunnar | Síðustu fimm ár hjá Tiger í tímalínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þvílík tilfinning. Tiger loksins kominn á toppinn á ný eftir tæplega 1.900 daga bið.
Þvílík tilfinning. Tiger loksins kominn á toppinn á ný eftir tæplega 1.900 daga bið. vísir/getty
Heimurinn fylgdist með í gær er Tiger Woods vann sitt fyrsta golfmót í 1.876 daga. Miðað við það sem hefur gengið á hjá Tiger síðustu fimm ár er kraftaverki líkast að hann hafi unnið sitt 80. golfmót á ferlinum í gær.

Tiger varð þá hlutskarpastur á lokamóti FedEx-mótaraðarinnar, Tour Championship. Hann spilaði stórkostlega alla vikuna og fyrir utan smá stress á lokaholunum steig hann varla feilspor.

Það er ekki svo langt síðan að Tiger komst varla fram úr rúminu fyrir verkjum. Hann er búinn að fara í fjórar bakaðgerðir á þessum fimm árum og var þakklátur er hann gat farið að labba verkjalaus. Þá sá hann varla fyrir sér að hann myndi vinna golfmót á ný.

Á þessum 1.876 dögum hafa farið fram 239 PGA-mót og 119 mismunandi kylfingar unnið þau mót.

Það glöddust allir með Tiger í gær og ótrúleg sjón er hann labbaði upp á 18. flöt. Hann var eins og rokkstjarna. Svona myndir sjást aldrei í golfinu.





Tiger sagði í viðtali eftir mótið að hann trúði því varla að honum hefði tekist þetta. Hann barðist við tárin í viðtalinu. Skiljanlega.





Rokkstjarna. Það var ótrúlegt að fylgjast með fjöldanum sem elti Tiger í gær.vísir/getty
Við skulum renna yfir tímalínuna og skoða hvað hefur gerst í lífi Tigers á þessum fimm árum milli sigranna.

2013:

4. ágúst: Tiger vinnur Bridgestone-mótið í áttunda sinn.

25. ágúst: Tiger fellur til jarðar af sársauka á Barclays-mótinu. Er að drepast í bakinu og kennir hótelrúminu sínu um. Nær samt einhvern veginn öðru sæti á mótinu.

6. október: Lagast í bakinu og nær öðru sæti á FedEx-mótaröðinni.

2014:

26. janúar: Fyrsta mót ársins á Torrey Pines. Gat ekkert og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

3. mars: Dregur sig úr Honda Classic-mótinu og segist vera slæmur í bakinu. Segir að verkurinn sé svipaður og hálfu ári áður. Þarna var ljóst að eitthvað mikið var að bakinu.

1. apríl: Margir héldu að það væri aprílgabb er Tiger tilkynnir að hann verði ekki með á Masters í fyrsta sinn í 20 ár. Hann fer í sína fyrstu bakaðgerð.

18. maí: Adam Scott tekur toppsætið heimslistans af Tiger en hann hafði verið þar í 683 vikur í heildina.

26. júní: Tiger missti af US Open en mætir á PGA-mót en kemst ekki í gegnum niðurskurðinn. Mánuði síðar kemst hann ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska.

3. ágúst: Byrjar vel á Bridgestone-mótinu en á lokahring fer hann aftur í bakinu. Neyðist til að draga sig úr keppni.

2015:

5. febrúar: Þarf enn og aftur að draga sig úr móti vegna bakmeiðsla. Reynir að gera lítið úr málinu í viðtölum en allir aðrir hafa áhyggjur.

29. mars: Tiger er ekki á topp 100 á heimslistanum í fyrsta skipti á ferlinum.

12. apríl: Spilar vel á Masters en nær ekki topp 15 eftir slakan lokahring. Meiðist aftur í bakinu.

3. maí: Tiger og Lindsey Vonn gefa út að þau séu ekki lengur par.

Sumarið 2015: Lélegasta sumar ferilsins. Kemst ekki í gegnum niðurskurðinn á US Open, The Open og á PGA-meistaramótinu

18. september: Tiger gefur út að hann hafi farið í sína þriðju bakaðgerð. Hún er gerð af sama lækni og hinar tvær.

1. desember: Fyrsti uppgjafartónninn. Tiger segir ómögulegt að spá í hvenær hann spili golf aftur og hann hafi ekkert að hlakka til. Ef hann geti gert eitthvað aftur á golfvellinum þá verði það stór bónus.

3. desember: TIME-tímaritið er með opinskátt viðtal við Tiger um lífið sem vekur mikla athygli.

2016:

24. febrúar: Tiger birtir myndband af sér í golfhermi og segist vera á réttri leið.





2. apríl: Þó svo Tiger segist vera á réttri leið þá dregur hann sig úr Masters. Mætir samt í meistaramatinn.

16. maí: Á fjölmiðladegi fyrir mót þá nær Tiger að setja þrjá bolta í vatnið í röð af stuttu færi. Hann er stífur og lítur ekki vel út.





19. júlí: Tiger dregir sig úr PGA-meistaramótinu og tekur því ekki þátt á neinu risamóti í fyrsta sinn síðan 1994. Þá var hann enn áhugamaður.

7. september: Tiger segist ætla að snúa aftur á Safeway Open. Stefnir á þrjú mót fyrir árslok.

10. október: Tiger segist ekki hafa heilsu til að taka þátt á Safeway Open.

2. desember: Nær loksins að spila á Hero-mótinu sínu. Spilar ágætlega og kemur í hús á 73 höggum.

22. desember: Vekur heimsathygli sem Mac Daddy Santa.





24. desember: Spilar golf á aðfangadegi með forsetaframbjóðandanum Donald Trump.





2017:

3. febrúar: Fyrsta PGA-mótið eftir síðustu bakaðgerð. Kemst ekki í gegnum niðurskurðinn.

31. mars: Gefur út að hann verði ekki með á Masters. Enn og aftur.

20. apríl: Fjórða bakaðgerðin fram undan. Að þessu sinni á að létta þrýsingi á klemmdum taugum sem halda Tiger rúmliggjandi. Ljóst er að hann verður lengi frá eftir þessa aðgerð.

29. maí: Tiger er handtekinn fyrir ölvunarakstur nærri heimili sínu í Flórída. Hann fannst sofandi í bílnum. Síðar kom í ljós að hann var ekki fullur heldur með fimm mismunandi verkjalyf í blóðinu.

31. ágúst: Tiger byrjar loksins að slá og leyfir heiminum að fylgjast með.





15. október: Loksins leyfi til þess að nota dræverinn.





27. október: Tiger mætir fyrir rétt vegna lyfjaakstursins. Játar sekt sína og fær tólf mánaða skilorðsbundinn dóm.

3. desember: Snýr aftur á golfvöllinn á mótinu sínu, Hero World Challenge. Var um tíma efstur en endar í níunda sæti. Það jákvæðasta sem hefur sést frá Tiger í mörg ár.

2018:

28. janúar: Spilar á sínu fyrsta PGA-móti í heilt ár. Spilar ágætlega og nær 23. sæti.

Mars: Stendur sig vel á tveimur mótum og nær öðru og fimmta sæti. Upphafshöggin eru þó í tómu tjóni.

8. apríl: Miklar væntingar er hann mætir aftur á Masters. Fyrsta risamótið síðan í ágúst 2015. Endar í 32. sæti.

22. júlí: Nálægt því að vinna Opna breska en endar tveimur höggum á eftir efsta manni.

6. september: Klárar hring upp á 62 högg á BMW-meistaramótinu. Endar í sjötta sæti en tryggir sér sæti á Tour Championship-mótinu með frammistöðunni. Er svo valinn í Ryder-liðið í fyrsta skipti í nokkur ár.

12. september: Skilorði Tigers er aflétt áður en því lýkur.

23. september: Stendur uppi sem sigurvegari á Tour Championship. Endurkoman fullkomnuð. Hann er loksins búinn að vinna 80 golfmót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×