Man Utd fyrsta liðið til að vinna Watford

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Man Utd stöðvaði sigurgöngu Watford
Man Utd stöðvaði sigurgöngu Watford vísir/getty
Manchester United heimsótti Watford í síðasta leik dagsins í enska boltanum en Watford var með fullt hús stiga þegar kom að leiknum á meðan Man Utd hafði aðeins unnið tvo af fyrstu fjórum leikjum sínum.

Sigurganga Watford var hins vegar stöðvuð í dag og má segja að Man Utd hafi lagt grunninn að sigrinum á þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik.

Romelu Lukaku hélt uppteknum hætti í markaskorun og kom Man Utd yfir á 35.mínútu. Skömmu síðar skoraði Chris Smalling laglegt mark eftir stoðsendingu frá Marouane Fellaini.

Heimamenn neituðu að gefast upp og Andre Gray minnkaði muninn eftir rúmlega klukkutíma leik.

Man Utd náði hins vegar að halda út en endaði leikinn með 10 leikmenn þar sem Nemanja Matic fékk að líta rauða spjaldið skömmu fyrir leikslok.

Man Utd nú í áttunda sæti deildarinnar en Watford er í því fjórða. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira