Innlent

Segir frumvarp um mannanöfn frelsismál hinsegin fólks

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Þorsteinn Víglundsson er flutningsmaður frumvarpsins
Þorsteinn Víglundsson er flutningsmaður frumvarpsins
Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, hyggst leggja fram frumvarp um mannanöfn þess efnis að binda endi á opinber afskipti í slíkum ákvörðunum. Hann segir að í umræðum muni líklega mætast átök milli frelsis og forræðishyggju.

Frumvarpið var flutt á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Málið er nú endurflutt að teknu tilliti til þeirra umsagna sem allsherjar- og menntamálanefnd aflaði. Þorsteinn Víglundsson, flutningsmaður segir að um frelsismál sé að ræða sem hafi mikla þýðingu fyrir réttindi hinsegin fólks.

„Frumvarpið snýr í grundvallaratriðum að frelsi fólks til að ákveða eigið nafn eða nafn barna sinna og binda endi á opinber afskipti af slíkri ákvörðun. Þetta er ákveðið frelsismál og það sem skiptir miklu máli eru réttindi hinsegin fólks til að bæði skipta um nöfn, en einnig að breyta kynskráningu sinni. Þetta dregur því verulega úr þeim hömlum sem í dag eru á slíku ferli. Í frjálslyndu samfélagi eigum við ekki að hafa ríkisafskipti af því hvað fólk heitir eða hvernig það kýs að breyta nafni sínu frá einum tíma til annars,“ segir Þorsteinn.

Frumvarpið er á dagskrá þingsins á morgun og vonar Þorsteinn að málið komist hratt til nefndar og ljúki á þessu þingi. Hann segir að í umræðum muni líklega mætast átök milli frelsis og forræðishyggju.

„Það eru vafalítið skiptar skoðanir um þetta. Ég held að þetta snúi auðvitað fyrst og fremst um það hvort þingheimur styðji frelsi einstaklingsins til að ákvarða þetta sjálft. Við getu sagt að þetta endurspegli ákveðin átök milli frelsis og forræðishyggju. Ég hlakka til umræðunnar um það,“ segir Þorsteinn.

Hér er hægt að lesa frumvarpið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×