Handbolti

Gísli Þorgeir kominn á blað hjá Kiel

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson gekk til liðs við Kiel frá FH í sumar.
Gísli Þorgeir Kristjánsson gekk til liðs við Kiel frá FH í sumar. vísir/eyþór
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark þegar Kiel vann fjórtán marka sigur á Bietigheim í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Gísli gekk í raðir Kiel frá FH í sumar en þetta var frumraun hans í þýsku úrvalsdeildinni.

Á sama tíma var Arnór Þór Gunnarsson næstmarkahæstur í liði Bergischer með fimm mörk þegar liðið vann öruggan níu marka sigur á Lemgo, 35-26.

Þá skoraði Alexander Petterson þrjú mörk þegar Rhein Neckar Löwen gerði jafntefli við Leipzig, 24-24.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×