Handbolti

Björgvin Páll með eina af vörslum helgarinnar í Meistaradeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hetjur Skjern í gær, Bjöggi og Anders Eggert. Bjöggi varði frábærlega og Eggert var markahæstur.
Hetjur Skjern í gær, Bjöggi og Anders Eggert. Bjöggi varði frábærlega og Eggert var markahæstur. mynd/skjern
Björgvin Páll Gústavsson og félagar í danska liðinu Skjern unnu frábæran útisigur, 26-27, á slóvenska liðinu Celje Lasko í Meistaradeildinni um helgina.

Björgvin Páll átti fínan leik í marki Skjern. Varði tólf skot og var með 32 prósent markvörslu. Hann varði þrjú vítaköst í leiknum og þar af eitt mjög mikilvægt á lokamínútunum.

Björgvin þurfti þó ekki að hafa mjög mikið fyrir öllum skotunum í leiknum eins og sjá má á þessari bráðfyndnu klippu hér að neðan.





Í uppgjöri helgarinnar var ein af vörslum Björgvins í leiknum valin sú fimmta besta. Frábær varsla úr hraðaupphlaupi sem má sjá hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×