Innlent

Riffill með kíki reyndist vera veiðistöng

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
vísir/vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu upp úr klukkan níu í kvöld um að fjórir ölvaðir menn, vopnaðir riffli með kíki, væru við verslun Nettó við Krossmóa í Reykjanesbæ.

Lögreglan staðfestir í samtali við fréttastofu að vegna alvarleika tilkynningarinnar hafi almennir lögreglumenn vopnast og héldu þeir á vettvang. 

Í ljós kom að málið var á misskilningi byggt og reyndust mennirnir sem tilkynnt var um, einungis vera með veiðistöng. 

Eftir að hafa rætt við mennina á vettvangi voru þeir frjálsir ferða sinna og var enginn handtekinn vegna málsins.

Tilkynnandi reyndist hafa ruglað saman veiðistöng með óföstu hjóli og riffli með kíki. 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×