Viðskipti innlent

Freyðivínssala 80 prósent meiri en 2007

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Á fyrstu átta mánuðum ársins seldust um 38 fleiri lítrar af kampavíni en á sama tímabili árið 2007.
Á fyrstu átta mánuðum ársins seldust um 38 fleiri lítrar af kampavíni en á sama tímabili árið 2007. Vísir/stefán
Mikil aukning hefur orðið á freyðivínsneyslu landsmanna á síðustu árum. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR seldust um 106.200 lítrar af freyðivíni í vínbúðum landsins frá ársbyrjun fram í september í ár. Þá seldustu um 7487 lítrar af kampavíni frá áramótum fram undir ágústlok.

Á sama tímabili í fyrra seldust um 87.664 lítrar af freyðivíni og 5.676 lítrar af kampavíni. Það gerir rúmlega 20 prósent aukning í freyðivínskaupum á milli ára og 30 prósent fleiri kampavínslítrar.

Freyðivínsneysla Íslendinga hið alræmda góðærisár 2007 var nánast hálfdrættingur á við árið í ár. Fyrstu átta mánuði ársins 2007 seldist alls 58.361 lítri af freyðivíni og um 7.449 lítrar af kampavíni. Kampavínsneysla landsmanna var því á nokkuð svipuðu reiki og í ár, hún var 38 lítrum meiri árið 2018 sem fyrr segir, en freyðivínsneyslan er hins vegar 80 prósent meiri í ár samaborið við árið 2007.

Upplýsingar ÁTVR um freyðivínsneyslu landsmanna frá ársbyrjun til ágústloka á árunum 2007 til 2018 má nálgast hér að neðan. Þar má til að mynda sjá að minnst seldist af kampavíni árið 2010 og að freyðivínsneyslan var minnst árið 2009.

 

janúar-ágústKampavínslítrarFreyðivínslítrar
2007744958361
20087300 60971
2009 3095 48480
20102086 49580
2011 2201 54626
2012 2286 52802
2013 2628 56791
2014 2842 70809
2015 3036 62705
2016 4385 70253
2017567687664
20187487106200





Fleiri fréttir

Sjá meira


×