Handbolti

Teitur markahæstur og sigurganga Kristianstad heldur áfram

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Teitur Örn Einarsson fór frá Selfossi til Kristianstad í sumar
Teitur Örn Einarsson fór frá Selfossi til Kristianstad í sumar vísir/eyþór
Kristianstad heldur áfram sigurgöngu sinni í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Teitur Örn Einarsson var á meðal markahæstu manna í liði Kristianstad í kvöld.

Svíþjóðarmeistararnir í Kristianstad tóku á móti HIF Karlskrona í kvöld og unnu fjögurra marka sigur 27-24. Staðan var jöfn 11-11 í hálfleik.

Selfyssingurinn Teitur Örn, sem gekk til liðs við Kristianstad í sumar, gerði fimm mörk í leiknum og var markahæstur í liði Kristianstad ásamt Emil Hansson. Þá átti hann tvær stoðsendingar.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Kristianstad en Ólafur Guðmundsson var ekki í leikmannahóp liðsins. Hann hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu.

Kristianstad hefur leikið fjóra leiki í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og unnið þá alla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×