Liðsstjóri danska liðsins GOG gengur um í stuttbuxum af Snorra Steini Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. september 2018 11:00 Snorri Steinn Guðjónsson í leik með Valsliðinu í fyrravetur. Vísir/Andri Marinó
Óðinn Þór Ríkharðsson hefur hafið sitt fyrsta atvinnumannatímabil með danska liðinu GOG en FH-ingurinn gekk til liðs við danska félagið í sumar. GOG er til alls líklegt í vetur og íslenski hornamaðurinn fær þarna frábært tækifæri til að stimpla sig enn frekar inn. Óðinn Þór fjallar um fyrstu dagana hjá GOG í viðtali við Ívar Benediktsson í Morgunblaðinu í dag og segir þar meðal annars mjög skemmtilega sögu af sporum sem annar íslenskur landsliðsmaður markaði hjá félaginu. Óðinn segir nefnilega frá því í þessu viðtali að liðsstjóri GOG liðsins sé mikill aðdáandi Snorra Steins Guðjónssonar. Snorri Steinn spilaði með GOG Svendborg TGI frá 2007 til 2009 en á þeim árum vann hann meðal annars Ólympíusilfur með íslenska landsliðinu og var einn af markahæstu leikmönnum á Ólympíuleikunum í Peking. Snorri Steinn snéri síðan aftur til GOG eftir Ólympíuleikana í London 2012 og spilaði þar í tvö ár. Umræddur liðstjóri GOG gengur meðal annars um á æfingum og í leikjum í stuttbuxum af Snorra Steini. „Hann er alltaf að tala um Snorra sem er honum afar minnisstæður,“ sagði Óðinn Þór í viðtalinu í Morgunblaðinu. Snorri Steinn Guðjónsson fór frá GOG til Frakklands og var þar með tveimur liðum í þrjú tímabil en er nú á öðru ári sem þjálfari Vals.
Handbolti Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Fleiri fréttir „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Sjá meira