Fótbolti

Miklu meiri áhugi á Futsal leikmönnunum en á vináttulandsleik með stórstjörnum Dana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Christian Bannis er einn af leikmönnunum í neyðarlandsliði Dana,
Christian Bannis er einn af leikmönnunum í neyðarlandsliði Dana, Vísir/EPA
Danska landsliðið stillti upp afar skrautlegu liði í vináttulandsleik á móti Slóvakíu í gær og það vildu greinilega margir horfa á þá spila í Danmörku.

Bestu leikmenn Dana voru hvergi sjáanlega vegna verkfalls þeirra og leikmenn danska landsliðsins komu heldur ekki úr tveimur efstu deildunum. Í stað þess voru í liðinu futsal leikmenn og leikmenn úr C-, D-, og E-deildum danska fótboltans.





Þetta var eins og leikmenn íslenska liðsins kæmu út 2. deildarliðum Aftureldingar, Völsungs, Vestra eða Gróttu og úr futsal-liði Vængja Júpiters.

Það var engu að síður miklu meiri áhugi á þessum vináttulandsleik en á vináttulandsleikina rétt fyrir HM í vor þegar danska liðið var með allar sínar stórstjörnur.

BT segir frá því að 624.500 mann horfðu á þennan leik í danska sjónvarpinu í gær eða fleiri en á síðasta fjóra vináttulandsleiki Dana á undan. Leikurinn var sýndur á Kanal 5 og tölurnar eru frá Gallup.





Í vináttulandsleik Dana á móti Svíum í júní þá voru sjónvarpsáhorfendurnar „aðeins“  346.000 en það sáu 450.000 manns síðasta æfingaleik Dana fyrir HM sem var á móti Mexíkó.

Það lítur út fyrir að þetta „Neyðarlandslið“ eins og Danirnir kalla það sjálfir spili líka leikinn í Þjóðadeildinni á móti Wales en sá leikur verður einmitt sýndur beint á Stöð 2 Sport á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×