Fyrsta markalausa jafnteflið

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jóhann Berg í baráttunni í dag
Jóhann Berg í baráttunni í dag Vísir/Getty
Southamtpon og Burnley skildu jöfn í fyrsta markalausa jafntefli nýs tímabils í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jóhann Berg Guðmundsson spilaði nær allan leikinn fyrir Burnley.

Gestirnir frá Burnley byrjuðu af krafti og áttu mörg skot að marki í upphafi. Leikurinn var mjög fjörugur og áttu bæði lið samanlagt 34 skot í leiknum.

Joe Hart stóð vaktina í marki Burnley í leiknum eftir að hafa komið til félagsins í sumar vegna meiðsla Nick Pope. Hann stóð sig frábærlega í markinu og var það einna helst honum að þakka að Southampton náði ekki að skora í leiknum.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley en var tekinn af velli undir lok leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira