Lífið

Hversu vel þekkja Becca og eiginmaðurinn tilvonandi hvort annað?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Becca mætti með kærastanum til Kimmel.
Becca mætti með kærastanum til Kimmel.
Þættirnir The Bachelorette njóta sífellt meiri vinsælda um heim allan og sérstaklega í Bandaríkjunum.

Í síðustu viku kláraðist 14. þáttaröðin og gaf Becca Kufrin síðustu rósina. Hún mætti ásamt unnusta sínum í spjallþátt Jimmy Kimmel strax eftir lokaþáttinn og ræddu þau tvö saman um þáttinn og framtíðina. Einnig tóku þau þátt í leik sem gekk út á það að finna út hversu vel þau þekkja hvort annað.

Höskuldarviðvörun: Þeir sem hafa ekki horf á nýjustu þáttaröðina af The Bachelorette og vilja alls ekki vita hvaða mann Becca valdi þurfa að hætta að lesa strax.

.

.

.

.

.

Það er búið að vara þig við.

.

.

.

.

.

.

Eftir þriggja tíma lokaþátt stóð Becca Kufrin frammi fyrir því að velja á milli þeirra Garrett Yrigoyen og Blake Horstmann.

Blake og Becca höfðu verið mjög náin alla þáttaröðina og töldu margir að hún myndi velja þann kost.

En það var að lokum Garrett sem fangaði hjarta hennar og fékk hann síðustu rósina. Kimmel fékk þau til að svara spurningum um hvort annað og þá kom í ljós að þau virðast þekkja hvort annað ágætlega á sumum sviðum, en ekki svo vel á öðrum eins og sjá má hér að neðan. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×