Yfir 800 franskar brýr í hættu á að hrynja Vésteinn Örn Pétursson skrifar 19. ágúst 2018 15:39 Samkvæmt rannsókninni eru að minnsta kosti 840 franskar brýr í hrunhættu. Vísir/Getty
Rannsókn sem fyrirskipuð var af frönsku ríkisstjórninni sýnir fram á að um 840 brýr í Frakklandi eru í svo slæmu ásigkomulagi að þær eiga á hættu að hrynja á næstu árum. Fréttaveitan AP greinir frá þessu. Ríkisstjórn forsetans Emmanuels Macron hafði þegar tilkynnt að hún ætlaði sér að auka fjárframlög til innviða landsins, en nú hefur áherslan á viðhald og uppbyggingu innviða aukist enn frekar, eftir hrun brúarinnar í Genúa á þriðjudag. Rannsóknin náði yfir þær 12.000 brýr sem eru á ábyrgð ríkisstjórnar Frakklands. Samkvæmt rannsókninni þarfnast þriðjungur brúnna einhverra lagfæringa, en 7% þeirra, um það bil 840 brýr, eiga það á hættu að hrynja á næstu árum, verði ekkert að gert. Rannsóknin náði ekki til þeirra þúsunda brúa sem eru í umsjón einkaaðila eða sveitar- og borgarstjórna í landinu. Í skýrslu sem inniheldur úrdrátt úr rannsókninni sem ríkisstjórnin gaf út í síðasta mánuði er fyrri ríkisstjórn kennt um ástandið. Segir þar að útgjöld til vegamála hafi verið of lág og of fátíð. Þá eru aukin umferð og öfgakennt veður í auknum mæli einnig tekin til sem ástæður fyrir ástandinu.
Erlent Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira