Erlent

Hakkarar stálu per­sónu­upp­lýsingum fjórðungs singa­púrsku þjóðarinnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
vísir/getty
Hakkarar hafa komist yfir persónuupplýsingar 1,5 milljóna Singapúra sem er meira en fjórðungur þjóðarinnar.

Hakkararnir brutust inn í heilbrigðisgagnagrunn landsins en árásin var gerð af ásettu ráði og var vel skipulögð að sögn yfirvalda.

Upplýsingarnar sem hakkararnir komust yfir voru nöfn og heimilisföng en ekki sjúkraskrár, fyrir utan upplýsingar er varðaði uppáskrifuð lyf 160 þúsund landsmanna.

Yfirvöld í Singapúr segja að ekki hafi verið neitt átt við gagnagrunninn, það er engum gögnum var breytt eða eytt af hökkurunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×