Fótbolti

Sumarmessan: Þegar Rúrik Gísla mætti Cristiano Ronaldo

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo skipti um félag í gær og telst nú vera leikmaður ítalska stórliðsins Juventus. Þessi einstaki knattspyrnumaður kvaddi Real Madrid eftir níu ára gósentíð á Bernabeu.

Strákarnir í Sumarmessunni ræddu þessi stærstu félagskipti sumarsins í fótboltanum og það þegar heiðursgesturinn Rúrik Gíslason mætti einum besta knattspyrnumanni allra tíma í Meistaradeildinni.

„Stærsta spurningin sem kemur upp í höfuðið á mér er hvað ætlar að Real Madrid að fá í staðinn. Það þarf að fá einhverja stjörnu í þetta lið,“ sagði Hjörvar Hafliðason.

„Það er væntanlega búið að ákveða það hver kemur í staðinn,“ skaut Benedikt Valsson inn í og strákarnir nefndu menn eins og þá Kylian Mbappé, Eden Hazard og Neymar.

„Þeir myndu ekki vera að selja Ronaldo nema af því að það er kominn stjarna á kantinn,“ sagði Rúrik Gíslason.



Rúrik Gíslason i baráttunni við Cristiano Ronaldo í Meistaradeildarleik í október 2013. Rúrik lék þá með FCK á móti Real Madrid á Santiago Bernabeu leikvanginum í MadridVísir/Getty
Strákarnir sýndu síðan frá leik Rúriks á móti Cristiano Ronaldo og Real Madrid í Meistaradeildinni. „Þetta var alveg agalegt skot,“ sagði Rúrik um skotið hans á Santiago Bernabeu leikvanginum sem var sýnt á meðan þeir ræddu Ronaldo.

Hvernig var það aftur á móti fyrir Rúrik að spila á móti Cristiano Ronaldo og Real Madrid?

„Ég fann mig ágætlega þarna og átti fínan leik,“ sagði Rúrik og svo er sýnt myndbrot frá því þegar hann lætur sjálfan Cristiano Ronaldo finna aðeins fyrir sér.

„Karlinn, kjötar hann,“ skaut Hjörvar Hafliðason inn í. Rúrik Gíslason var hinsvegar fljótur að beina umræðunni aftur af framtíð mála hjá Real.

„Ef ég væri að stjórna einhverju þarna hjá Real Madrid þá væru mennirnir sem ég vildi mest fá þeir Mbappé og Hazard. Ég myndi reyna að ýta því í gegn,“ sagði Rúrik.

„Þeir verða að fá stórstjörnu en fótbolti er ekki bara fótbolti í dag. Þetta er líka rosaleg markaðsvara,“ sagði Hjörvar en það má finna alla umræðuna í Sumarmessunni um Cristiano Ronaldo í spilaranum hér fyrir ofan.

Sumarmessan er á dagskrá á Stöð 2 Sport klukkan 21:00 að kvöldi hvers leikdags á HM í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×