WOW Air tapaði 2,4 milljörðum í fyrra Birgir Olgeirsson skrifar 13. júlí 2018 15:11 Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air, segir afkomu ársins 2017 vonbrigði. Vísir/Ernir
Íslenska flugfélagið WOW Air tapaði 2,4 milljörðum íslenskra króna í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu um rekstur síðasta árs. Þar kemur fram að tekjur WOW Air árið 2017 námu 486 milljónum Bandaríkjadala, sem eru um 52 milljarðar íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, en WOW segir þetta var 58 prósenta aukningu miðað við árið á undan. Rekstrarhagnaður eftir afskriftir var fjórar milljónir Bandaríkjadala, eða um 428 milljónir íslenskra króna, samanborið við 46 milljónir dollara árið 2016. Rekstrartap félagsins var 13,5 milljónir Bandaríkjadala, eða um 1,4 milljarðar íslenskra króna, samanborið við 30 milljóna Bandaríkjadala hagnað árið 2016. Tap ársins 2017 eftir tekjuskatt var 22 milljónir dala, eða um 2,4 milljarðar íslenskra króna, miðað við 35,5 milljónir Bandaríkjadala, 3,8 milljarðar íslenskra króna, hagnað árið áður. Í tilkynningunni kemur fram að eiginfjárhlutfall félagsins var 10,9 prósent í lok árs 2017. Þá kemur jafnframt fram í tilkynningunni að árið 2017 hefði einkennst af miklum vexti og fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 80 prósent og farþegum um 69 prósent. Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air, segir í tilkynningunni að afkoma ársins 2017 hafi verið vonbrigði þar sem þessi mikli vöxtur og fjárfesting reyndist dýrari en fyrirtækið hafði áætlað. Hann segir ytri ástæður hafa reynst krefjandi og nefnir þar hækkandi olíuverð, styrking krónunnar, dýrt rekstrarumhverfi á Íslandi og mikil samkeppni á lykilmörkuðum félagsins. Hann segir félagið vera að skoða marga áhugaverða möguleika varðandi langtímafjármögnun félagsins.Tilkynninguna í heild má lesa hér fyrir neðan:Tekjur WOW air ehf. árið 2017 námu 486 milljónum Bandaríkjadala sem er 58% aukning miðað við árið á undan. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsgjöld og tekjuskatt (EBITDA) var 4 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 46 milljónir Bandaríkjadala árið 2016. Rekstrartap (EBIT) félagsins árið 2017 var 13,5 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 30 milljóna Bandaríkjadala hagnað árið 2016. Tap ársins 2017 eftir tekjuskatt var 22 milljónir Bandaríkjadala miðað við 35,5 milljónir Bandaríkjadala hagnað árið áður. Eiginfjárhlutfall félagsins var 10.9% í árslok. Árið 2017 einkenndist af miklum vexti og fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 80% og farþegum um 69%.Frá stofnun WOW air árið 2011 hefur félagið vaxið mjög hratt og fjárfest hefur verið í nýjum flugvélum, nýjum áfangastöðum og þá sérstaklega í uppbyggingu innviða eins og tækniinnviðum og öflugu starfsfólki. Þessar fjárfestingar eru allar liður í því að tryggja langtímahorfur félagsins. Afkoma ársins 2017 einkenndist af auknum kostnaði vegna þessa vaxtar og fjárfestinga en á síðustu misserum hefur verið unnið í því að styrkja grunnstoðir fyrirtækisins. Starfsmenn WOW air eru nú 1.500 en voru 1.100 á sama tíma í júlí 2017.Horfur fyrir árið 2018 eru ágætar en félagið stendur vissulega frammi fyrir sömu áskorunum og önnur flugfélög með háu olíuverði og óvissu með gengi íslensku krónunnar. Framboð floginna sætiskílómetra var 29% meira fyrstu 6 mánuði ársins í samanburði við sömu mánuði árið 2017. Farþegum félagsins fjölgaði um 31% miðað við sama tíma í fyrra og er mest aukning í tengifarþegum sem ferðast yfir Atlantshafið og eru þeir nú um 55% af farþegum félagsins. Á fyrstu sex mánuðum ársins var 37% vöxtur í tekjum WOW air og einingatekjur (RASK) félagins hækkuðu á sama tíma um 5% en félagið hefur ráðist í fjölmörg tekjuskapandi verkefni á síðustu misserum. Sætanýting hefur verið mjög góð hjá WOW air það sem af er árinu eða 91%. Félagið kynnti fyrr á árinu ný farrými; WOW Premium og Comfy sem bjóða upp á fjölbreytni í sætavali fyrir farþega. Góður vöxtur hefur verið í tekjum félagsins í fraktflutningum en WOW air eignaðist 60% hlut í Cargo Express á fyrra hluta þessa árs en á fyrstu sex mánuðum ársins var 60% vöxtur í tekjum af fraktflutningum. Cargo Express velti 1,4 milljarði íslenskra króna árið 2017 og skilaði 235 milljónum íslenskra króna í hagnað eftir skatta.WOW air er á árinu búið að taka á móti þremur nýjum Airbus A321 flugvélum og fjórar Airbus A330neo flugvélar munu bætast við flotann í lok árs og verður þá floti félagsins 24 vélar. Það sem af er ári hafa bæst við sjö nýir flugvellir; í Detroit, Dallas, St Louis, Cleveland, Cincinnati, New York JFK og London Stansted. Áfangastaðir WOW air eru því um 40 talsins árið 2018. WOW air mun svo hefja flug til Indlands 6. desember og hefur sala flugsæta gengið vel en mikill áhugi er á þessari flugleið frá Bandaríkjunum, Kanada og Indlandi.„WOW air hefur vaxið og fjárfest gríðarlega síðustu ár en með þessum fjárfestingum höfum við verið að að tryggja langtímahorfur félagsins. Bæði 2015 og 2016 voru mjög góð ár en afkoman fyrir árið 2017 voru vonbrigði þar sem þessi mikli vöxtur og fjárfesting reyndist dýrari en við ætluðum okkur. Ytri aðstæður hafa reynst félaginu krefjandi svo sem hækkandi olíuverð, styrking krónunnar, dýrt rekstrarumhverfi á Íslandi og mikil samkeppni á lykilmörkuðum félagsins. Árið 2018 einkennist áfram af mikilli uppbyggingu og erum við mjög ánægð með þá markaðshlutdeild sem félagið hefur náð til og frá Íslandi og yfir Atlantshafið á mjög skömmum tíma. Þetta er öflugur grunnur til að byggja ofan á um ókomna tíð og til að styrkja stoðir félagsins enn frekar en við erum að skoða marga áhugaverða möguleika varðandi langtímafjármögnun félagsins,” segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.
Fréttir af flugi WOW Air Tengdar fréttir Forstjóri Icelandair stappar stálinu í starfsfólk sitt: „Ég veit að ég get treyst á ykkur öll“ Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, hughreystir starfsfólk sitt í tölvupósti. 9. júlí 2018 23:43 „Lenda hreinlega í ákveðnum vandræðum“ Hagfræðingur Viðskiptaráðs fer yfir stöðu íslensku flugfélaganna. 10. júlí 2018 12:35 Mest lesið Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Viðskipti innlent Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Viðskipti innlent Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Viðskipti innlent Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Viðskipti innlent GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Samstarf Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Sjá meira
Forstjóri Icelandair stappar stálinu í starfsfólk sitt: „Ég veit að ég get treyst á ykkur öll“ Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, hughreystir starfsfólk sitt í tölvupósti. 9. júlí 2018 23:43
„Lenda hreinlega í ákveðnum vandræðum“ Hagfræðingur Viðskiptaráðs fer yfir stöðu íslensku flugfélaganna. 10. júlí 2018 12:35