Enski boltinn

Daley Blind á leið til Ajax

Dagur Lárusson skrifar
Daley Blind.
Daley Blind. vísir/getty
Manchester Unitef hefur samþykkt að selja hollenska varnarmanninn, Daley Blind, aftur til hans heimaliðs Ajax.

 

Blind, sem er 28 ára gamall, kom til Manchester United frá Ajax sumarið 2014 þegar hollendingurinn Louis van Gaal var við stjórnvölin.

 

Blind var nánast með fast sæti í byrjunarliði Manchester United þegar Louis van Gaal var með liðið en spilatími hans hefur minnkað eftir að Jose Mourinho tók við liðinu.

 

Daley Blind vann þrjá titla á sínum fjórum árum hjá félaginu en samkvæmt BBC þá er Ajax að borga um 14 milljónir punda fyrir leikmanninn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×