Sport

Kerber hafði betur gegn Williams í úrslitunum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Williams og Kerber fallast í faðma í lok leiksins
Williams og Kerber fallast í faðma í lok leiksins Vísir/Getty
Angelique Kerber vann Wimbledon mótið í tennis í fyrsta skipti á ferlinum með því að hafa betur gegn Serena Williams í úrslitaleiknum í dag.

Williams hefur spilað vel á mótinu og hafði ekki tapað setti fyrir úrslitaleikinn. Þetta var aðeins hennar fjórða mót eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn síðasta haust.

Kerber var ellefta í styrkleikaröðuninni fyrir mótið og bætti fyrsta Wimbledon titlinum í safnið sem innihélt titla frá Opna ástralska og Opna bandaríska.

Hin þýska Kerber vann í tveimur settum, 6-3 6-3.

Kerber er fyrsta þýska konan til þess að vinna Wimbledon í 22 árvísir/getty

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×