Fótbolti

United kvaddi Blind

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Daley Blind skoraði sitt fyrsta mark fyrir United árið 2016
Daley Blind skoraði sitt fyrsta mark fyrir United árið 2016 vísir/getty
Daley Blind er orðinn leikmaður Ajax í Hollandi. Manchester United staðfesti í morgun að leikmaðurinn hefði yfirgefið félagið og snúið aftur heim til Hollands. Blind kom til United frá Ajax árið 2014 og spilaði 141 leik fyrir félagið. Hann fékk ekki mikinn spilatíma undir stjórn Jose Mourinho og spilaði aðeins 17 leiki á síðasta tímabili. Blind skrifaði undir fjögurra ára samning við uppeldisfélagið Ajax. Eftir tilkynningu United skrifaði Blind sjálfur kveðju á Twitter þar sem hann þakkaði fyrir sig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×