Villandi fullyrðingar Toyota Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júlí 2018 11:17 Toyota þarf að útskýra fullyrðingar sínar betur. Toyota
Neytendastofa telur fullyrðingar Toyota, um að Hybrid bifreiðar fyrirtækisins séu 50% rafdrifnar, vera villandi. Hefur fyrirtækinu verið bannað að nota fullyrðinguna í auglýsingum sínum án þess að nánari skýringar komi fram. Á vef Neytendastofu kemur fram stofnunin hafi óskað eftir úskýringum á fullyrðingunni, sem Toyota hafi svarað með vísunum í rannsóknir um eldsneytisnýtingu Hybrid bifreiða Toyota. Í rannsóknunum er mælt að hve miklu leyti bifreiðarnar nota aðeins rafmagn. „Niðurstöðunum er skipt þannig niður að sýnt er annars vegar hlutfall af keyrðum kílómetrum og hins vegar hlutfall af tíma sem reynsluaksturinn tók. Fullyrðing Toyota byggir á því að rannsóknirnar sýna að rúmlega 50% af þeim tíma sem bifreiðarnar eru í akstri nota þær eingöngu rafmagn,“ er útskýrt á vef Neytendastofu. Því telur stofnunin að skilja megi fullyrðingu Toyota með þessum tvennum hætti og „útilokað að neytendur átti sig á því, af fullyrðingunni einni og sér, að hún eigi eingöngu við aksturstíma,“ eins og þar stendur. Því væri villandi að birta fullyrðinguna án þeirrar skýringar að vísað væri til aksturstíma í blönduðum akstri. Með ákvörðuninni var Toyota bönnuð frekari birting fullyrðingarinnar án þess að nánari skýringar kæmu fram.Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.
Bílar Neytendur Mest lesið Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Innlent Gummi lögga er maður ársins 2025 Innlent „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Fleiri fréttir Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Sjá meira