Fótbolti

Gylfi: Sama rútína hjá mér í vítinu eins og alltaf

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson undirbýr sig að taka vítaspyrnuna.
Gylfi Þór Sigurðsson undirbýr sig að taka vítaspyrnuna. Vísir/Vilhelm
Gylfi Þór Sigurðsson fékk kjörið tækifærið til að koma íslenska liðinu aftur inn í leikinn á móti Nígeríu en skaut þá yfir úr vítaspyrnu.

Gylfi hefur skorað úr nokkrum mikilvægum vítaspyrnum fyrir íslenska landsliðið en að þessu sinni brást hann á úrslitastundu.

„Við erum gríðarlega svekktir og þá sérstaklega eftir fyrri hálfleikinn. Við vorum mjög fínir þar en vorum síðan mjög ólíkir okkur sjálfum í seinni hálfleiknum,“ sagði Gylfi en hvað klikkaði í seinni hálfleiknum?

„Við vorum svolítið óþolinmóðir, vorum að reyna að vinna leikinn í stað þess að bíða rólegir og þéttir til baka. Ég man ekki hversu margar skyndisóknir þeir áttu í seinni hálfleik en við vorum bara algjörlega ólíkir sjálfum okkur í seinni hálfleiknum,“ sagði Gylfi.

„Við vissum að þeir höfðu engu að tapa og mundi selja sig dýrt í seinni hálfleik. Við töluðum um það en strax í byrjun seinni hálfleiks fóru þeir í skyndisókn og næstum því skoruðu. Þetta var síðan þannig allan seinni hálfleikinn,“ sagði Gylfi.

„Í fyrri hálfleik vorum við að skapa fín færi, sköpuðum mikla hættu í föstum leikatriðum og áttum góðar sóknir. Við reyndum að sækja sigurinn í stað þess að vera þolinmóðir og láta þetta gerast hægt og rólega. Þeir spiluðu sig alltof auðveldlega í gegnum miðjuna, fram og svo út á kantana í seinni hálfleik,“ sagði Gylfi en hvað með vítaspyrnuna. Hvað fór í gegnum hausinn?

„Ég vildi bara skora. Það er leiðinlegt þegar þetta fer eins og þetta fór en maður verður bara að halda áfram,“ sagði Gylfi.

„Þetta var sama rútína hjá mér í vítinu eins og alltaf. Því miður fór boltinn yfir,“ sagði Gylfi.

„Með góðum úrslitum í dag hefði þetta nokkurn veginn legið fyrir okkur. Þá hefði verið mjög líklegt að við hefðum farið áfram. Við klúðruðum því og núna þurfum við að bíða eftir öðrum úrslitum og auðvitað vinna okkar leik,“ sagði Gylfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×