Innlent

Fundu lík mannsins sem lenti í Ölfusá

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá leitinni að manninum í Ölfusá í síðasta mánuði.
Frá leitinni að manninum í Ölfusá í síðasta mánuði. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Lík mannsins sem leitað hefur verið að í Ölfusá frá 20. maí er fundið. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að líkið hafi fundist fyrir landi Arnarbælis í Ölfusi í morgun. Menn á göngu við ána fundu líkið og tilkynntu lögreglu.

Björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Árborgar aðstoðu lögreglu við vinnu á vettvangi.

Lögreglu barst tilkynning um að maðurinn hefði farið í ánna kl. 3 aðfaranótt sunnudagsins 20. maí. Björgunarsveitir af Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út til leitar sem bar engan árangur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×