Innlent

Skora á ráðherra að friða virkjunarsvæði Hvalárvirkjunar

Kjartan Kjartansson skrifar
Vesturverk vill reisa 55 MW virkjun í Hvalá í Ófeigsfirði.
Vesturverk vill reisa 55 MW virkjun í Hvalá í Ófeigsfirði. Mats Wibe Lund
Stjórn Landverndar sendi frá áskorun til umhverfis- og auðlindaráðherra um að hann friði Drangajökulssvæðið og vísar til tillögu Náttúrufræðistofnunar Íslands þess efnis. Fyrirhugað virkjunarsvæði Hvalárvirkjunar er innan friðlandsins samkvæmt tillögum stofnunarinnar.

Drangajökulssvæðið er á meðal 112 svæða sem Náttúrufræðistofnun Íslands leggur til að vernda í B-hluta náttúruminjaskrár sinnar. Í umsögn um svæðið segir meðal annars að möguleg virkjun vatnsfalla þar geti haft talsverð áhrif á víðerni og ásýnd þess. Þá gæti hún mögulega raskað ákveðnum jarðminjum.

Stjórn Landverndar fagnar tillögum Náttúrufræðistofnunar um að setja stórt svæði við Drangajökul á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár og friðlýsa svæðið í ályktun sem hún hefur samþykkt. Hún bendir á að umhverfis- og auðlindaráðherra skuli samkvæmt náttúruverndarlögum leggja fram náttúruverndaráætlun á fimm ára fresti og í B hluta hennar, sem nefnist framkvæmdaáætlun, séu svæði sem Alþingi ákveður að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun á næstu fimm árum.

Fullyrðir stjórn Landverndar að Hvalárvirkjun muni ekki tryggja Vestfirðingum raforkuöryggi. Vegna þeirra minja sem finna má á svæðinu og víðernaupplifunar geti það skapað arðbærari tækifæri að vernda svæðið en virkja það.

Því skorar Landvernd á umhverfis- og auðlindaráðherra að leggja náttúruminjaskrá fyrir Alþingi sem allra fyrst þegar þing kemur saman í haust og friðlýsa svæðið við Drangajökul. Einnig skora samtökin á iðnaðarráðherra að styrkja flutningskerfi raforku á Vestfjörðum, sem sé raunveruleg forsenda raforkuöryggis Vestfjarða og að uppræta það sem Landvernd kallar blekkingar að Hvalárvirkjun eða aðrar einstakar virkjarnir stuðli að því.

„Það er Vestfirðingum og Íslendingum öllum til heilla að vernda svæðið við Drangajökul og allar þær minjar sem það hefur að geyma en mikil ógn steðjar að þessum óspilltu víðernum með Hvalárvirkjun og frekar ætti að líta til þeirra tækifæra sem í þessari náttúruperlu felast sé svæðið verndað,“ segir í ályktun stjórnar Landverndar.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, var framkvæmdastjóri Landverndar frá 2011 þangað til hann tók við ráðherraembætti í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×