Viðskipti erlent

Samfélagsmiðlarisar reyna að friða bandaríska íhaldsmenn

Kjartan Kjartansson skrifar
Jack Dorsey, forstjóri Twitter, fundaði nýlega með leiðtogum repúblikana og íhaldssömum álitsgjöfum vegna gagnrýni þeirra á meinta frjálslynda slagsíðu samfélagsmiðla.
Jack Dorsey, forstjóri Twitter, fundaði nýlega með leiðtogum repúblikana og íhaldssömum álitsgjöfum vegna gagnrýni þeirra á meinta frjálslynda slagsíðu samfélagsmiðla. Vísir/EPA
Stjórnendur samfélagsmiðlarisanna Facebook og Twitter hafa undanfarið fundað með leiðtogum bandarískra repúblikana og íhaldsmanna til að bregðast við ásökunum þeirra að tæknifyrirtæki sé hlutdræg gegn þeim og ritskoði færslur hægrimanna.

Washington Post segir að forysta Repúblikanaflokksins hafi kvartað við stjórnendur samfélagsmiðlanna, þar á meðal nánir aðstoðarmenn Donalds Trump forseta. Íhaldsmenn hafa lengið sakað samfélagsmiðla um að takmarka útbreiðslu færslna þeirra á laun.

Stjórnendur Twitter og Facebook hafa gengist við því að starfslið þeirra séu að miklu leyti frjálslynt og til vinstri í bandarískum stjórnmálum.

Til að bregðast við bauð Jack Dorsey, forstjóri Twitter, leiðtogum repúblikana og íhaldssömum álitsgjöfum til einkakvöldverðar í Washington-borg í síðustu viku. Dorsey er sagður hafa ætlað sér að byggja upp traust á milli fyrirtækisins og íhaldsmanna.

Hann á að hafa neitað því að Twitter beitti sér á ósanngjarnan hátt gegn hægrisinnuðum notendum en engu að síður viðurkennt að fyrirtækið gæti gert betur. Íhaldsmennirnir hafi á móti sagt honum að ráða verkfræðinga með fjölbreyttari stjórnmálaskoðanir.

Dorsey er sagður hafa hitt fleiri álitsgjafa og þingmenn repúblikana undanfarið til að reyna að friða þá og svara gagnrýni þeirra.

Facebook er einnig sagt hafa sent fulltrúa sína til að ræða við landsnefnd Repúblikanaflokksins fyrr í þessum mánuði. Fyrirtækið hefur hafið útekt á því hvort að hlutdrægni sé til staðar gagnvart íhaldssömum starfsmönnum eða á efni frá íhaldssmönnum á miðlinum.

Hvorki Twitter né Facebook vildi tjá sig um samskipti sín við íhaldssama gagnrýnendur við Washington Post.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×