Innlent

Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að stofna lífi fjölda fólks í stórhættu

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. Vísir/Aðsent
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað fertugan karlmann í vikulangt gæsluvarðhald grunaðan um að stofna lífi fólks í hættu í umferðinni eftir að hafa orðið valdur að tjóni á fjölda bíla á Reykjanesbraut í gærmorgun. Er maðurinn jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. 

Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Hafnarfirði, segir manninn grunaðan um að hafa brotið ansi mörg lög með hátterni sínu, þar á meðal svokallað almannahættubrot, það er að stofna lífi fjölda fólks í hættu með akstri sínum.

Slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun en áður hafði lögreglan komið auga á bíl mannsins á miklum hraða á Reykjanesbrautinni. Lögreglan ók í gagnstæða átt og þurfti að snúa við til að fara á eftir manninum.

Sævar segir það ekki rétt að maðurinn hafi verið á flótta á undan lögreglunni líkt og vitni á vettvangi héldu fram. Segir Sævar lögregluna hafa verið langt fyrir aftan manninn og hann þar að auki ekki vitað af henni. Lögreglan hafi síðan komið að þar sem maðurinn hafði ekið inn í hóp bíla nærri Hlíðartorgi í Hafnarfirði.

Tíu bílar skemmdust í slysinu og var ökumaður eins þeirra fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Fjóra bílanna varð að fjarlægja af vettvangi með dráttarbíl. Vegna slyssins var Reykjanesbraut lokuð til norðurs frá Ásbraut að Lækjargötu í um það bil tvær og hálfa klukkustund.

Er maðurinn að sögn Sævars fertugur að aldri, af erlendu bergi brotinn en búsettur hér á landi. 

Minnt er á að lögreglan óskar eftir upplýsingum um bifreiðina, en þar er átt við myndskeið af ferð bílsins, sem er svartur Suzuki Swift, á Reykjanesbraut í aðdragana slyssins ef einhver kann að hafa slíkt undir höndum. Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið rosa@lrh.is eða í síma 444 1000. Einnig er tekið við ábendingum í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu embættisins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×