Fótbolti

Drengirnir hans Heimis halda áfram að vinna

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Heimi gengur vel í Færeyjum
Heimi gengur vel í Færeyjum vísir/getty
HB Þórshöfn vann enn einn leikinn í færeysku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið tók á móti Vestur Sorvagur. Lærisveinar Heims Guðjónssonar eru óstöðvandi þessa dagana.

Adrian Justinussen braut ísinn á 21. mínútu og fóru heimamenn með 1-0 forystu inn í leikhléið.

Magnus Egilsson bætti öðru markinu við í seinni hálfleik og Simun Samuelsen skoraði það þriðja á 80. mínútu. Kyrylo Silich klóraði í bakkann fyrir gestina á 89. mínútu en það dugði ekki til og 3-1 sigur HB í höfn.

HB trónir örugglega á toppi deildarinnar með 34 stig úr 13 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×