Innlent

Með húfu og vettlinga í ræktinni

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Átta Íslendingar taka þátt í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum sem verður á Spáni í næstu viku. Þeir æfa nú af kappi og sumir kappklæddir til þess að venjast hreyfingu í miklum hita.

Af hverju ertu í öllum þessum fötum á hlaupabrettinu?

„Ég er að æfa fyrir heitt hlaup sem ég er fara í og þetta er fín leið til þess," segir hlauparinn Guðni Páll Pálsson.

Í hverju ertu þá?

„Ég er í ullarbol undir, í vatnheldum buxum og vatnsheldum jakka og með húfu og vettlinga."

Heita hlaupið er heimsmeistaramót í utanvegahlaupum. Leiðin er 85 kílómetrar með fimm þúsund metra hæðaraukninginu í fjalli við borgina Castéllon á Spáni. Hópurinn sem telur átta Íslendinga heldur út á þriðjudag og keppnin er laugardaginn 12. maí.

Þau vonast til að geta skoðað aðstæður við komuna. „Við vitum ekkert hvernig leiðin er; Hversu erfið hún er. Hún verður erfið en hversu tæknileg og hversu erfið kemur í ljós," segir Elísabet Margeirsdóttir, sem er einnig er á leið til Spánar.

Hér er leiðin teiknuð upp með hækkunum.
Elísabet og Guðni hafa bæði hafa reynslu af fjallahlaupum og segist Guðni áður hafa lent í vandræðum með hitann. Þess vegna leggi hann áherslu á þessar æfingar. „Maður hefur oft lent í miklum hita. Lent í kannski 30 stiga hita sem maður er ekki vanur. Þannig að í ár ákvað ég að gera eitthvað í því í staðinn fyrir að kvarta bara yfir því," segir Guðni léttur.

Markmið þeirra eru að vera um tíu til ellefu tíma á leiðinni. Vegalengdin hræðir þau ekki. „Ég fór í mitt fyrsta 100 kílómetra hlaup árið 2011 þannig þessi vegalengd núna, 85 kílómetrar, finnst mér mjög skemmtileg," segir Elísabet.

Hægt er að fylgjast með hópnum frá Íslandi á Facebook-síðu þeirra og hér má nálgast upplýsingar um hlaupið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×