Barcelona rúllaði yfir Villarreal

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Messi skorar
Messi skorar vísir/getty
Barcelona slær ekki slöku við í spænsku úrvalsdeildinni þó liðið sé fyrir löngu búið að tryggja sér titilinn. Villarreal voru gestir kvöldsins á Nou Camp og þeir stóðu heiðursvörð fyrir leik.

Börsungar lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik því að honum loknum var staðan 3-0. Brasilíumennirnir Philippe Coutinho og Paulinho skoruðu með fimm mínútna millibili snemma leiks og Lionel Messi fullkomnaði frábæran fyrri hálfleik heimamanna með marki eftir undirbúning Andres Iniesta á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Síðari hálfleikurinn var öllu rólegri og Ítalanum Nicola Sansone tókst meira að segja að minnka muninn fyrir gestina með marki á 54.mínútu. Ousmane Dembele náði hins vegar að auka við forystuna aftur með tveimur mörkum skömmu fyrir leikslok. Lokatölur 5-1.

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira