Ramsey og Welbeck komu Arsenal til bjargar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Welbeck fagnar mikilvægu marki sínu í kvöld.
Welbeck fagnar mikilvægu marki sínu í kvöld. vísir/afp
Arsenal komst í hann krappann gegn CSKA Moskvu í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en Arsenal náði jafntefli í kvöld 2-2. Samanlagt fer Arsenal áfram 6-3.

Fedor Chalov kom CSKA yfir á 39. mínútu og heimamenn í Moskva leiddu 1-0 í hálfleik. Það var svo Kirill Nababkin sem tvöfaldaði forystuna á 50. mínútu.

CSKA þurfti því bara eitt mark til þess að skjóta Arsenal úr keppni en mark frá Danny Welbeck stundarfjórðungi fyrir leikslok og Aaron Ramsey í uppbótartíma gerði út um þetta fyrir Arsenal.

Lokaniðurstaðan 2-2 í Moskvu og samanlagt fer Arsenal áfram 6-3 en ásamt Arsenal er Atletico Madrid, Salzburg og Marseille komið áfram.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira