Erlent

Vilja bann við umskurði

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Skiptar skoðanir eru meðal Dana um málið.
Skiptar skoðanir eru meðal Dana um málið. Vísir/Getty
Ungliðahreyfingar borgaraflokkanna þriggja í Danmörku, Venstre, Frjálslynda bandalagsins og Danska þjóðarflokksins, lýsa yfir stuðningi við borgaratillögu sem lögð hefur verið fram þar í landi um bann við umskurði drengja yngri en 18 ára. Um 36 þúsund manns eru fylgjandi slíku banni.

Um 50 þúsund rafrænar undirskriftir þarf til að borgaratillaga komi til umfjöllunar í danska þinginu.

Skiptar skoðanir eru meðal þingmanna um hvort banna eigi umskurð drengja.


Tengdar fréttir

Danskir læknar styðja umskurðarfrumvarpið

Yfir þúsund danskir læknar, nánar tiltekið 1033, hafa sent Alþingi umsögn um frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, um bann við umskurði drengja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×