Golf

Pernilla Lindberg hafði betur eftir átta holu bráðabana

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Pernilla Lindberg og Inbee Park féllust í faðma eftir algjörlega magnað einvígi
Pernilla Lindberg og Inbee Park féllust í faðma eftir algjörlega magnað einvígi vísir/getty
Sænski kylfingurinn Pernilla Lindberg tryggði sér sigur á ANA Inspiration eftir bráðabana en um er að ræða fyrsta risamót ársins í kvennagolfinu og er mótið hluti af LPGA mótaröðinni.

Hin 31 árs gamla Lindberg háði harða baráttu við Inbee Park og réðust úrslitin ekki fyrr en eftir átta holu bráðabana.

Lindberg fékk fugl á lokaholunni á meðan Park fór hana á pari og því fór sem fór. Þetta er fyrsta risamótið sem Lindberg vinnur á sínum ferli.

Íslenski kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir tók þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurð eftir tvo hringi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×