Handbolti

Haukur er eftir allt saman sá yngsti sem hefur skorað fyrir íslenska landsliðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Þrastarson og Gísli Kristjánsson. Gísli er líka inn á topplistanum.
Haukur Þrastarson og Gísli Kristjánsson. Gísli er líka inn á topplistanum. Vísir/Rakel Ósk
Nýjasta undrabarnið í íslenska handboltanum náði að slá metið yfir yngsta markaskorara Íslands frá upphafi.

Selfyssingurinn Haukur Þrastarson skoraði þrjú mörk í fyrsta landsleiknum sínum í gær þegar Ísland mætti Noregi í Gulldeildinni.

Haukur verður ekki sautján ára fyrr en í næstu viku og er því orðinn landsliðsmaður áður en hann fær bílprófið.

Margir voru að velta því fyrir sér hvort að Haukur væri sá yngsti frá upphafi enda allt annað en algengt að leikmenn sem eru enn gjaldgengir í sautján ára landsliðið fái tækifæri með A-landsliðinu.

Við fyrstu athugun leit út fyrir að Haukur væri ekki sá yngsti sem hefur opnað markareikninginn sinn fyrir íslenska handboltalandsliðið. Eftir

Samkvæmt fyrstu upplýsingum um fæðingardag Héðins Gilssonar (sjá hér) þá átti hann að vera tveimur mánuðum yngri þegar hann skoraði fyrir íslenska landsliðið á móti Sovétríkjunum á Friðarleikunum í Moskvu í júlí 1986.

Héðinn, var hinsvegar ekki 16 ára, 9 mánaða og 21 dags gamall heldur í raun einu ári eldri. Héðinn er ekki fæddur 22. september 1969 heldur 22. september 1968.  Vísir fékk ábendingu um þetta og hefur leiðrétt fréttina.

Héðinn skoraði þrjú mörk í leiknum en hann hafði spilað sína fyrstu deildarleiki með meistaraflokki FH á tímabilinu á undan, 1985-86

„Gils kom mjög á óvart. Hann skoraði fyrsta mark Íslands en síðan varð hann að fara af leikvelli vegna meiðsla, en kom aftur inná í lokin og skoraði þá tvö mörk. Sannarlega framtíðarleikmaður,“ hafði Morgunblaðið eftir Jóni Hjaltalíni Magnússyni, þáverandi formanni HSÍ, sem var fararstjóri liðsins í Sovétríkjunum.

Héðinn Gilsson lék alls 138 landsleiki og skoraði í þeim 300 mörk. Margir muna eftir honum í B-keppninni 1989 og þá sérstaklega í sigurleiknum á móti Vestur-Þýskalandi þar sem Héðinn kom mjög sterkur inn eftir að Alfreð Gíslason fékk að líta rauða spjaldið.

Samkvæmt upplýsingunum sem undirritaður hefur nú undir höndum þá eru þetta þeir yngstu sem hafa skorað fyrir landsliðð. Haukur var ekki að bæta met Héðins Gilssonar í gær heldur met Bjarna Guðmundssonar frá 1974.



Óstaðfestur topplisti yfir yngstu markaskorara landsliðsins:

16 ára, 11 mánaða og 22 daga

Haukur Þrastarson - 3 mörk á móti Noregi 2018

17 ára, 9 mánaða og 18 daga

Bjarni Guðmundsson - 1 mark á móti Lúxemborg 1974

17 ára, 9 mánaða og 21 dags

Héðinn Gilsson - 3 mörk á móti Sovétríkjunum 1986

18 ára, 3 mánaða og 10 daga

Aron Pálmarsson - 2 mörk á móti Belgíu 2008

18 ára, 4 mánaða og 17 daga

Patrekur Jóhannesson - 1 mark á móti Tékkóslóvakíu 1990

18 ára, 5 mánaða og 5 daga

Gísli Þorgeir Kristjánsson - 6 mörk á móti Japan 2018

18 ára, 5 mánaða og 11 daga

Árni Friðleifsson - 3 mörk á móti Ísrael 1986




Fleiri fréttir

Sjá meira


×