Golf

Bubba táraðist eftir sigurinn og þakkaði móður sinni fyrir allt | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bubba Watson með sigurlaunin.
Bubba Watson með sigurlaunin. vísir/getty
Bandaríski kylfingurinn Bubba Watson stóð uppi sem sigurvegari á WCG-heimsmótinu í holukeppni á PGA-mótaröðinni í gærkvöldi.

Hann valtaði yfir Kevin Kisner í úrslitaleiknum, 7-6, og vann sitt ellefta mót á mótaröðinni og heimsbikarinn í holukeppni í annað sinn.

Bubba Watson er ekkert þekktur fyrir að leyna tilfinningum sínum og gekk hann grátandi af gleði til móður sinnar sem faðmaði strákinn og sagði við hann nokkur falleg orð.

„Ég byrjaði vel í dag og ég er bara svo einbeittur að golfinu núna. Ég var að faðma mömmu mína og hún sagði að ég hefði staðið mig vel en ég lét hana vita að án hennar væri ég ekkert. Ég veit ekki hvar ég væri án móður minnar.“ sagði Bubba í viðtali að loknum sigurhringum.

Með sigrinum komst Bubba í fámennan hóp goðsagnakenndra kylfinga sem hafa unnið þetta mót oftar en einu sinni. Á listanum eru þeir Tiger Woods,  Phil Mickelson, Ernie Els og Rory McIlroy.

„Maður hugsar ekkert um svona lista. Maður hugsar bara um titla og að reyna að vinna eitthvað,“ sagði Bubba Watson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×