Viðskipti innlent

Stjórnar­laun Fé­lags­bú­staða hækkuðu um 150 prósent

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða.
Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða. Mynd/Félagsbústaðir
Launakostnaður stjórnenda Félagsbústaða hækkaði um 12,6 milljónir milli ára. Stjórnarlaun hækkuðu úr 47 þúsundum í 122 þúsund á mánuði.

Framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir 12,6 milljóna króna hækkun á samtölu launa hans og stjórnar félagsins milli ára í ársreikningi eiga sér skýringar í mikilli hækkun stjórnarlauna árið 2016, breytingu á greiðslufyrirkomulagi þeirra, launahækkun og yfirvinnuálagi hans í fyrra og yfirsjón við að gera grein fyrir bílastyrk hans í ársreikningi 2016.

Í ársreikningi Félagsbústaða fyrir árið 2017 segir í skýringu að laun vegna stjórnarsetu árin 2016 og 2017 og laun framkvæmdastjóra árið 2017 hafi numið 30,8 milljónum samanborið við 18,2 milljónir árið áður. Engar frekari skýringar eða sundurliðun er gefin á þessum breytingum.

Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, segir þessa framsetningu vissulega gagnrýniverða enda gefi hún ekki glögga mynd af skiptingu þeirra liða sem undir hana falla í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins. Hækkunin milli ára eigi sér þó eðlilegar skýringar.

Í fyrsta lagi hafi stjórnarlaun vegna ársins 2016 verið hækkuð úr 47.917 krónum á mánuði í 122.000 á mánuði, eða um ríflega 154 prósent. Hækkunin hafi verið liður í samræmingu hjá Reykjavíkurborg. Samhliða þessari hækkun var ákveðið að breyta greiðslufyrirkomulagi stjórnarlauna. Horfið var frá því að greiða þau öll í einu eftir á í fyrirframgreiðslu mánaðarlega. Þetta hafði gert það verkum að árið 2017 væri í ársreikningi bókuð tvöföld stjórnarlaun, sem skekki myndina.

Þá hafi framkvæmdastjórinn fengið 10 prósenta launahækkun í fyrra, fór úr 1.328 þúsund krónum á mánuði í 1.458 þúsund. Þá hafði láðst að gera grein fyrir bílastyrk framkvæmdastjórans í skýringu við ársreikning 2016 en hann fær 1.680 þúsund krónur á ári í slík hlunnindi. Loks fékk framkvæmdastjórinn á síðasta ári 1,4 milljónir greiddar í yfirvinnu „vegna mikils og óvenjulegs álags í tengslum við breytt lagaumhverfi fjármögnunar fyrirtækisins og útgáfu skuldabréfa á vegum þess“. Ekki sé um fasta greiðslu að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×