Golf

Ólafía: Hitti hann geðveikt vel og svo hvarf hann

Anton Ingi Leifsson skrifar
Magnað hjá Ólafíu í dag.
Magnað hjá Ólafíu í dag. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, var himinlifandi eftir fyrsta hringinn á ANA mótinu sem er hluti af LPGA-mótaröðinni en Ólafía fór holu í höggi á fyrsta hringnum í dag. Mótið sem fer fram um helgina er fyrsta stórmót ársins.

„Ég var 165 metra fra og ég sló með fimm járni. Ég hitti hann geðveikt vel, var aðeins vinstra megin því boltinn rúllar þá til hægri,” sagði Ólafía.

„Svo bara hvarf hann og ég fékk smá sjokk en þetta var ótrúlega gaman,” en höggið skilaði Ólafíu Þórunni tveimur flugmiðum á fyrsta farrými hjá ANA flugfélaginu sem er aðal styrktaraðili mótsins.

Sjá einnig:Ólafía fór holu í höggi á fyrsta risamóti ársins

„Ég veit ekki alveg hvert ég á eftir að fara en ég býð Thomasi (innsk. blm. kærasti Ólafíu) kannski eitthvað huggulegt.”

Ólafía spilaði nokkuð kaflaskipt golf. Hún fékk örn í tvígang, tvo fugla og sex skolla.

„Hringurinn var upp og niður. Ég strögglaði smá en hélt alltaf áfram að berjast. Svo fékk ég högg til baka hér og þar eins og þegar ég fékk örn. Ég átti geggjað inná högg og púttið rúllaði í.”

„Ég er mjög ánægð með hvernig ég barðist í dag. Það er geðveikt að spila á fyrsta stórmótinu á árinu. Völlurinn er geggjaður og grínin eru ótrúlega hröð. Ef þú missir boltann útaf getur það verið mjög erfitt.”

„Þetta er ótrúlega atvinnumannalegt allt hérna. Ég ætla að vera þolinmóð á morgun og gera mitt besta. Halda áfram sama leikskipulagi og vera andlega sterk,” sagði Ólafía að lokum.


Tengdar fréttir

Ólafía fór holu í höggi á fyrsta risamóti ársins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á sautjándu brautinni á Dinah Shore vellinum í Kaliforníu. Ólafía spilaði fyrsta hringinn á pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×