Golf

Átjánda holan fór afar illa með okkar konu í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir er í 85. sæti eftir fyrsta daginn á opna Nýja Suður-Wales golfmótinu á LET Evrópumótaröðinni.

Valdís lék fyrstu átján holurnar á 76 höggum eða fimm höggum yfir pari. Hún er tíu höggum á eftir efstu konu og fimm höggum frá topp þrjátíu.

Valdís Þóra fékk fugl á fyrstu holu og alls þrjá fugla á hringnum en fimm skollar og aðallega martröð á átjándu holunni komu í veg fyrir gott skot.

Valdís Þór lék átjándu holuna á sjö höggum eða þremur höggum yfir pari. Það var í raun níunda holan hennar á hringnum því hún fór út á tíundu.

Valdís vann sig samt ágætlega út úr þeim vonbrigðum því hún vann tvö högg til baka á næstu fjórum holum.

Tveir skollar á síðustu þremur holunum sáu hinsvegar til þess að hún fékk niður um 30 sæti í töflunni.

Valdís Þóra þarf að spila mun betur á öðrum hringnum ætli hún sér að ná niðurskurðinum.

NSW mótið er fjórða mótið í röð hjá Valdísi Þóru á LET Evrópumótaröðinni á þessu ári en öll mótin hafa farið fram í Ástralíu. Íslandsmeistarinn 2017 tók einnig þátt á LPGA móti í febrúar og er mótið því fimmta mótið í röð hjá Valdísi Þóru í þessari keppnistörn.

Besta árangrinum náði hún um síðustu helgi þegar hún tók þriðja sætið á Ladies Classic Bonville mótinu. Valdís Þóra lék þá hringina fjóra á sjö höggum undir pari. Hún náði ekki alveg að fylgja því eftir í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×