Lífið

Kántrímeistaranum bannað að vinna með manninum sem sló í gegn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Blake Shelton var manna spenntastur.
Blake Shelton var manna spenntastur.
Kántrísöngvarinn Justin Kilgore flutti lagið Tomorrow í blindu áheyrnaprufunum í The Voice á dögunum og sló algjörlega í gegn.

Dómararnir Kelly Clarkson, Alicia Keys, Adam Levine og Blake Shelton vildu öll starfa með Kilgore en hann flutti lagið af mikilli snilld.

Sennilega var Blake Shelton manna spenntastur en hann er sjálfur einn vinsælasti kántrísöngvari heims. Að þessu sinni geta dómararnir aftur á móti blokkað hvorn annan og því komið í veg fyrir ákveðin samstörf.

Það gerðist í umræddri áheyrnaprufu eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×