Jafntefli hjá Barcelona

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lionel Messi fagnar marki með Barcelona.
Lionel Messi fagnar marki með Barcelona. Vísir/Getty
Barcelona missti mikilvæg stig í toppbaráttunni í spænsku La Liga deildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Las Palmas á útivelli.

Lionel Messi kom Barcelona yfir á 21. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Gestirnir voru 1-0 yfir í hálfleik.

Síðari hálfleikurinn byrjaði með látum þegar Las Palmas fékk vítaspyrnu. Jonathan Calleri fór á punktinn og skoraði. Mikið skilningsleysi var í kringum það afhverju vítaspyrnan var dæmd, einhverjir hefðu eflaust óskað eftir myndbandsdómara til að skoða þetta atvik betur.

Heimamenn tvíefldust við jöfnunarmarkið og voru sterkari á næstu mínútum. Barcelona sótti í sig veðrið þegar leið á en náði ekki að koma inn sigurmarki, 1-1 jafntefli niðurstaðan.

Þetta var aðeins sjötti leikurinn í La Liga deildinni í vetur þar sem Barcelona tapar sigur. Eftir stórsigur Atletico Madrid munar aðeins fimm stigum á liðunum í deildinni eftir 26 umferðir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira