Lífið

Marsspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir marsmánuð má sjá hér fyrir neðan.

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.

Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com 


Tengdar fréttir

Marsspá Siggu Kling – Vatnsberinn: Þig langar ekki í ljúft og lipurt líf

Elsku Vatnsberinn minn, kannski virðistu vera alveg venjulegur og alls ekki skera þig úr með eitt né neitt, en það er bara það sem þú virðist vera og þú hefur skrautlegan fatastíl, eða skemmtilegan, eða töff og þú ert eitthvað svo persónulegur með allt sem þú gerir eða nálgast.

Marsspá Siggu Kling – Ljónið: Fáðu lánaða dómgreind eða visku

Elsku hjartans tilfinningaþrungna Ljónið mitt, þú ert einhvern veginn eins og hlaðborð af öllum réttum og það er svo erfitt að útskýra þig eða þetta hlaðborð, en hversu spennandi er ekki sú manneskja sem þú í raun og veru getur ekki útskýrt?

Marsspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Þú ert á tímabili ferðalaga

Elsku Bogmaðurinn minn, þú ert svo mögnuð tilfinningavera og þar af leiðandi er lífið þitt búið að vera svolítið eins og hávaðarok eða lygna og á góðri ensku gæti það þýtt "rollercoaster“, sem ef þú skoðar betur gæti bara verið ansi spennandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×