Real Madrid ekki í vandræðum með Getafe

Einar Sigurvinsson skrifar
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í kvöld.
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í kvöld. vísir/getty
Real Madrid vann góðan sigur á Getafe í spænsku úrvaldsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Real Madrid vann leikinn 3-1 en hann fór fram á Santiago Bernabeu.

Heimamenn í Real Madrid komust yfir á 24 mínútu með marki frá Garath Bale. Rétt fyrir hálfleik kom Cristiano Ronaldo sínum mönnum í 2-0.

Á 65. mínútu fékk Getafe víti og skoraði Francisco Portillo úr því. Staðan því orðin 2-1.

Cristiano Ronaldo var síðan aftur á ferðinni á 78. mínútu og kom Real Madrid í 3-1 eftir sendingu frá Marcelo.

Real Madrid situr í 3. sæti deildarinnar með 54 stig, 12 stigum á eftir toppliði Barcelona.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira