Fótbolti

Aron bjargaði stigi fyrir Bremen

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron fagnar marki sínu í kvöld.
Aron fagnar marki sínu í kvöld.
Aron Jóhannsson bjargaði stigi fyrir Werder Bremen gegn Borussia Mönchengladbach á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Aron kom inná í stöðunni 2-0, en lokatölur urðu 2-2.

Gestirnir í Bremen byrjuðu ekki vel því eftir fimm mínútur var Borussia komið yfir með marki Denis Zakaria. Fyrir hálfleik gerði svo Niklas Moisander sjálfsmark og 2-0 fyrir heimamönnum í hálfleik.

Aroni Jóhannssyni var skipt inná í hálfleik og danski landsliðsmaðurinn Thomas Delaney minnkaði muninn á 59. mínútu eftir undirbúning Max Kruse.

Það var svo Aron sem jafnaði tólf mínútum fyrir leikslok, en hann hefur verið að komast betur og betur inn í lið Bremen með hverri mínútunni sem hann spilar. Lokatölur 2-2.

Bremen er í fjórtánda sæti deildarinnar með 27 stig, en Borussia Mönchengladbach er í sjöunda sætinu með 35 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×